MK - Borgó
Vonandi líka fyrir alla viðkomandi að Páll Ásgeir hafi talið fiskana rétt fyrir kvöldið.

Mikil synd var að ég skyldi ekki hafa birt spár mínar í gær, því þá hefði Egill Óskarsson á gettubetur.is séð að betur ætti hann að bíða eftir spá undirritaðs og herma svo eftir henni. Sjálfur var ég upptekinn við undirbúning fyrir keppni kvöldsins og gat því ekki gert forráðamanni gettubetur.is þann greiða.
Já, Versló fóru áfram og komu þar með mörgum að óvart, að því er virðist. Sjálfum fannst mér keppni þeirra í 1. umferð erfiðasta keppni umferðarinnar og þótti menn vera ósanngjarnir í hrakfaraspá sínum um Versló. Veit ég að MS-ingar ýmsir hafa talað um að Mælifell heiti Mælifellshnjúkur og skal ég gera út um þá blórabögglaleit þeirra. Hæsti punktur Mælifells heitir vissulega Mælifellshnjúkur en spurt var um fjall, og enginn skal efast um tilvist Mælifells sem slíkt. Stórskemmtileg keppni engu að síður.
Ekki skal þó hugsa of mikið um liðna tíð, og því sný ég mér að keppnum kvöldsins sem bíður.
Kvennaskólinn í Reykjavík - Menntaskólinn að Laugarvatni
Mennirnir sem vilja draga aftur og aftur unnu Flensborg í jafnri, og nokkuð stigahárri, keppni fyrir viku síðan. ML hins vegar hlutu 16 stig gegn 4 stigum andstæðingsins í síðustu umferð. Kvennó eru mun sterkari og komast örugglega áfram - þökk sé heppilegum endurdrætti.
Menntaskólinn á Akureyri - Menntaskólinn á Egilstöðum
Áðurnefnd gettubetur.is segir Egilstaði fara áfram. Vissulega fengu þau 27 stig í 1. umferð, en það gegn slöku liði og í léttri keppni. Þetta lið, sem missti sinn afgerandi besta mann frá síðasta ári, tapaði fyrir okkur í MH með 11 stiga mun í 8-liða úrslitum í fyrra. MA hins vegar töpuðu með einu stigi fyrir Versló og eru með sama lið í ár. Þau fengu 26 stig gegn mun sterkari andstæðingum en ME. MA, sem er eina liðið sem inniheldur tvær stelpur, fer því örugglega áfram. Ekkert burst, en örugglega þó.
Byrjunarskjálfti var fyrirsögn gettubetur.is um keppnir gærkvöldsins og benti þar með á augljósan byrjunarskjálfta í spádómum mínum þetta árið. Garðbæingar komu mér enn á óvart og voru fleiri breytingar á liði þeirra en ég hafði haldið, og þar af leiðandi sátu þeir eftir með sárt ennið.
Páll Ásgeir fór ágætlega af stað fannst mér. Spurningarnar ekki þær frumlegustu eða erfiðustu en þannig verður þetta líka skemmtilegast á meðan þetta er í fyrstu umferð. Bjölluspurningarnar fannst mér þó oft á tíðum annaðhvort of léttar eða of þungar, þó vissulega sé það einungis mitt álit miðað við mína þekkingu.
RÚV fannst mér hins vegar skjóta sig illa í fótinn. Þeir styttu hraðaspurningar til að gera jafna út ójafnar viðureignir og sömuleiðis komu á bjölluspurningum til að gera þetta meira spennandi. Raunin varð sú að styttingin á hraðaspurningunum breytti ekki nógu miklu til að mæta ójöfnuðinum sem bjölluspurningarnar sköpuðu. Þjálfað lið gegn óþjálfuðu liði mun alltaf rúlla upp bjölluspurningum, og þó MR-ingar hafi vissulega verið sterkir þá leyfi ég mér að efast um hvort þeir hefðu náð 33 stigum með víxlspurningaformi. Í gær náðu Austfirðingar að spreyta sig á þremur bjölluspurningum – með gamla forminu hefðu þeir fengið að reyna við a.m.k. átta slíkar. Einnig fannst mér sérkennilegt að hafa ekki tóndæmin einnig í bjölluspurningaformi, fyrst gengið var í þessar breytingar.
En þá að keppnum kvöldsins.
Ég sé í raun bara útkomu úr þessari keppni, nema róttækar breytingar hafi verið gerðar á liðunum tveimur. FS tapaði naumlega fyrir MS í 2. umferð í fyrra á meðan Iðnó tapaði með 13 stiga mun gegn Vestmannaeyingum (sem voru svo rótburstaðir af ME í 2. umferð). FS áfram.
FAS töpuðu örugglega fyrir áðurnefndum Suðurnesjamönnum í 1. umferð í fyrra en Hraðbraut hefur alltaf skipað miðlungsgóðu liði. Hraðbraut örugglega áfram.
ME missa sinn afgerandi besta menn en ættu engu að síður að vinna lánlausa Húsvíkinga.
Lið MA er eftir því sem ég veit óbreytt frá því í fyrra og ætti því að vinna örugglega.
Internetvandræði heimilisins og fjölmargar tegundir af leti valda því að hinn týndi sonur Gettu Betur-bloggsins snýr ekki aftur fyrr en nú. Og hvílík dásemd það er fyrir þau 0,0003 prósent þjóðarinnar sem eru keppendur í Gettu Betur að geta leitað til völvu völvanna, Klingenberg Klingenberganna, já til Nostradamusar sjálfs – því enginn er færari að spá fyrir um komandi keppnir heldur en litli strákurinn sem felldi tár í beinni útsendingu vegna þess að hann tapaði í Gettu Betur, og skal engan undrast. Því Gettu Betur er keppni sem alvarlegir menn, eins og ég sjálfur, taka alvarlega. Eða við þykjumst gera það a.m.k.
Þeir hefðu átt að vinna í fyrra ef keppnisíþróttir væru dæmdar af sanngirni en ekki stigafjölda. Kópavogsmenn eru einstaklega duglegir og fékk ég símtal frá einum slíkum snemma í haust þar sem óskað var eftir æfingakeppni – þá vorum við vart búin að skipa nýtt lið. Þeir, ásamt MR-ingum, eru án efa liðið sem verður erfiðast að sigra. Rétt eins og Liverpool er stórveldi enskrar knattspyrnu er MR stórveldi þessarar keppni. Ég hata að segja það en það er bara satt. Þeir verða sigurstranglegir í vetur, sem fyrr. Lið þeirra inniheldur mann sem vann Meistara Loga Bergmanns þar sem núverandi dómari Gettu Betur komst í undanúrslit! En þar með er ekki sagt að þeir vinni örugglega. Magnús skal vita það sem arftaki hins mikla meistara Jónasar Helgasonar að sá maður komst ekki lengra í Gettu Betur en einu sinni í undanúrslit á þremur árum. Einnig misstu þeir sinn sterkasta mann frá síðasta ári, þó nýliðinn Vignir (sem var liðsstjóri á síðasta ári) sé eina breytingin á liðinu. Nágrannar mínir í Versló eru óskrifað blað. Árni, Ásgeir og Hafsteinn hafa allir snúið sér að öðru, svo best sem ég veit, þrátt fyrir að allir séu þeir enn nemendur skólans. Því mun lið þeirra skipa þremur nýliðum í fyrsta sinn í langan tíma. Síðasta undanúrslitaliðið í fyrra er auðvitað mitt eigið lið. Eftir að tillaga mín um að vera einn í liði var samþykkt heyrðist lágvært Veto úr horni og því fundum við tvo nýliða. Mér þykir mjög leiðinlegt að segja það en í fyrsta sinn frá því snemma á síðasta áratug er engin stelpa í Gettu Betur-liði MH. Við reyndum og reyndum og okkur langaði svo ótrúlega mikið en við einfaldlega gátum ekki með góðri samvisku haft stelpu í liðinu. Það voru tvö sæti laus og eina frambærilega stelpan sem hafði áhuga var að okkar mati afgerandi þriðja best. Þess í stað er stelpa í þjálfaraliðinu, og ekki veit ég um mörg lið sem státa af því. Karlaveldið í Hamrahlíðinni mun aftur á móti ekki vara lengi því tveir okkar útskrifast í vor, og ég get nánast lofað stelpu í liðið á næsta ári. Fleiri lið eru auðvitað í keppninni. Helst skal nefna lið eins og MA sem verða með sama lið og tapaði naumlega fyrir Versló í fyrra og Borgó, sem áttu ekki sinn besta dag gegn okkur í 2. umferð fyrir ári. Af þessum liðum held ég að MR og MK ættu að vera í sérflokki. Versló gætu vel verið sterkir þó lítið sé hægt að segja til um það. Sömuleiðis veit ég lítið um hversu góðir við í MH erum gagnvart öðrum liðum. Persónulega er ég spenntur fyrir MA sem gætu vel strítt sterkustu liðunum en hef aftur á móti ekki jafn mikla trú á Borgó. En þá að keppnum kvöldsins. Menntaskólinn í Reykjavík – Verkmenntaskóli Austurlands, Neskaupsstað Hinn meinti MR-hroki mun blómstra að rústi loknu. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ – Menntaskólinn á Ísafirði Ísfirðingar stóðu sig ekki illa gegn Verslingum í fyrra, hvort þeir séu með sama lið veit ég ekkert um. Garðbæingar missa hins vegar einn, sem var þó ekki þeirra besti maður. Þó FG standi ekki beint nærri hjarta mínu þá verð ég að leyfa Garðbæingum að njóta vafans, enda er ég slíkur sjálfur. Svo væri bara svo gaman að mæta þeim sjálfur. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra – Menntaskólinn að Laugarvatni FNV urðu fyrsta fórnarlamb MK í fyrra (þó MK hefðu þá aðeins tekið 8 stig í hraða), töpuðu stórt og voru arfaslakir. ML voru einnig slakir, töpuðu fyrir lélegri Flensborg í fyrstu umferð. ML voru ögn sterkari þá, hafa meiri hefð fyrir keppninni og hljóta því að vinna í kvöld. Verzlunarskóli Íslands – Fjölbrautaskóli Snæfellinga Versló mun vinna, sama hversu nýtt lið þeir eru með. |